Go to full page →

Lœknandi blessun RR 181

Sambandið milli hugar og líkama er mjög mikið. Þegar annað verður fyrir áhrifum, verður svörun hjá hinu. Ástand hugans hefur mikið með heilbrigði líkamlega kerfisins að gera. Ef hugurinn er frjáls og finnur til hamingju, býr við góða samvisku yfir réttum gjörðum og nýtur ánægju af að færa öðrum hamingju, mun það skapa glaðværð sem mun hafa áhrif á allt kerfið, orsaka frjálsari hringrás blóðsins og hressa upp allan líkamann. Blessun Guðs er lækning og þeir sem gera mikið af að vera öðrum til góðs, munu finna fyrir þeirri dásamlegu blessun í hjarta sínu og lífi. - 4 T 60, 61. RR 181.1