Go to full page →

Nú er aðeins stutt eftir RR 183

Nú er aðeins stutt eftir þangað til Jesú mun koma til að frelsa börn sín og til að leggja síðustu hönd á ódauðleika þeirra. “Þetta hið forgengilega á að íklæðast óforgengileikanum og þetta hið dauðlega að íklæðast ódauðleikanum.” Grafirnar munu opnast, og hinir dauðu munu koma fram sigrihrósandi og segja: “Dauði, hvar er sigur þinn? Dauði, hvar er broddur þinn?” Okkar kærkomnu ættingjar og vinir sem sofa í Jesú munu stíga fram í ódauðleika. RR 183.4

Og á meðan hinir endurleystu hefjast til himins, munu hliðin á borg Guðs opnast, og þeir sem varðveitt hafa sannleikann munu inn ganga. Rödd, sem er fylltari en nokkur tónlist sem borist hefur að eyrum dauðlegra manna, mun heyrast og segja: “Komið þér, hinir blessuðu föður míns, og takið að erfð ríkið, sem yður var fyrirbúið frá grundvöllum heims.” Þá munu hinir réttlátu veita viðtöku launum sínum. Líf þeirra mun verða í samhljóðan við líf Jehóva. Þeir munu varpa kórónum sínum niður fyrir fætur endurlausnarans, snerta hinar gullnu hörpur og fylla allan himinnin með hljómríkri tónlist. - Signs 15. apríl 1889. RR 184.1

ENDIR