Go to full page →

Myrkur fært inn í söfnuðina RR 53

Sumir bregðast því að fræða fólkið um gjörvalla skyldu þess. Þeir predika þann hluta trúar okkar sem ekki mun skapa mótstöðu og valda áheyrendum þeirra óánægju; en þeir boða ekki allan sannleikann. Fólkinu líkar prédikanir þeirra, en það er vöntun á andlegheitum, vegna þess að kröfum Guðs er ekki fullnægt. Fólk hans afhendir honum ekki í tíundum og gjöfum það sem tilheyrir honum. Þetta rán gagnvart Guði, sem iðkað er bæði af ríkum og fátækum, færir myrkur yfir söfnuðina; og presturinn sem starfar með þeim og sem ekki sýnir þeim skýran, opinberaðan vilja Guðs, er sakfelldur með fólkinu vegna þess að hann vanrækir skyldu sína. - R&H16. maí 1884. RR 53.3