Go to full page →

Kafla 3—Hvers vegna Guð notar menn til að úthluta gjöfum sínum RR 14

Guð er ekki háður mönnum til að koma málefnum sínum áfram. En til að rækta í okkur anda góðgirninnar, hefur hann kosið að nota menn til að gera þetta verk. RR 14.1

Sérhver athöfn sjálfsfórnar öðrum til góðs, mun styrkja anda góðgerðarseminnar í hjarta gefandans og tengja hann endurlausnara heimsins sterkari böndum . . . Og það er aðeins þegar við uppfyllum hið guðlega áform sköpunar okkar, að lífið getur verið okkur blessun. Allar góðar gjafir Guðs manninum til handa munu aðeins reynast honum bölvun, nema hann nýti þær til að blessa meðbróður sinn og efla málefni Guðs á jörðinni. - R&H 7. des. 1886. RR 14.2