Go to full page →

Glöðum gjafara veitt viðtaka RR 111

Allar gjafir okkar ætti að færa fram með glaðværð, því þær koma úr þeim sjóð sem Drottni hefur þóknast að leggja í hendur okkar í þeim tilgangi að halda starfi hans gangandi í heiminum, til þess að sannleiksfáni hans geti blaktað við hina fjölförnu og fáförnu vegi jarðarinnar. Ef allir sem játa sannleikann gæfu Drottni það sem honum tilheyrir í tíund, gjöfum og fórnum, yrði fæðsla til í húsi Drottins. Málefni líknarstarfsins væri þá ekki lengur háð hinum óöruggu gjöfum skyndihvata og myndi þá ekki breytast í takt við hinar breytilegu tilfinningar mannanna. Tilkall Guðs væri þá virt að verðleikum og málefni hans væri þá réttilega álitið eiga rétt á hluta þess fjármagns sem okkur hefur verið treyst fyrir. Í gegnum sjálfsafneitun, munu hinir fátækustu finna leiðir til að fá eitthvað til að gefa Guði til baka. - R&H 14. júlí 1896. RR 111.2