Loading...
Larger font
Smaller font
Copy
Print
Contents

Daglegt Líf

 - Contents
  • Results
  • Related
  • Featured
No results found for: "".
  • Weighted Relevancy
  • Content Sequence
  • Relevancy
  • Earliest First
  • Latest First
    Larger font
    Smaller font
    Copy
    Print
    Contents

    FRIÐUR VEGNA MEÐVITUNDAR UM RÉTTA BREYTNI, 26. maí

    Gnótt friðar hafa þeir, er elska lögmál þitt og þeim er við engri hrösun hœtt. Sálm. 119, 165DL 152.1

    Ef hugurinn er frjáls og hamingjusamur vegna meðvitundar um rétta breytni og ánægju yfir því að hafa gert aðra hamingjusama, skapar það glaðværð, sem hefur áhrif á allt líkamskerfið, veldur frjálsari blóðrás og hressir upp á allan líkamann. Blessun Guðs er læknandi kraftur og þeir, sem gera mikið öðrum til góðs munu skynja þá undursamlegu blessun bæði í hjarta og lífi. 116CTBH. 13DL 152.2

    Þeir sem ganga veg viskunnar og heilagleikans munu ekki vera ónáðaðir af tilgangslausum harmi yfir illa notuðum stundum. Sorti og hryllingur hugans mun heldur ekki ónáða þá, eins og suma, nema þeir taki þátt i einskis nýtum og ómerkilegum skemmtunum...DL 152.3

    Skemmtanirnar æsa hugann, en hryggð mun vissulega koma á eftir. Nytsamt starf og líkamleg hreyfing munu hafa heilsusamlegri áhrif á hugann og munu styrkja vöðvana, bæta blóðrásina, og reynast undursamlegur máttur til að endurheimta heilsuna...DL 152.4

    Meðvitundin um rétta breytni er besta lyfið fyrir sjúka líkama og huga. Heilsa og þróttur er hin sérstaka blessun Guðs, sem kemur yfir þann, sem tekur á móti. 117HR, March, 1872DL 152.5

    Góðverk gerir bæði gefanda og þiggjanda gott. Ef þú gleymir sjálfum þér í áhuga þínum á öðrum, munt þú eignast sigur yfir krankleika þínum. Sú ánægja, sem þú munt eignast við það að gera gott mun veita þér mikla aðstoð við það að endurheimta hinn heilsusamlega blæ hugmyndaflugsins. Ánægjan yfir því að gera gott örvar hugann og ómar gegnum allan líkamann. 1182T, 534DL 152.6

    Einstaklingurinn er á veginum sem liggur heilsunnar ef hugurinn er rólegur og ánægður í Drottni. 119R&H. March 11, 1880DL 152.7

    Larger font
    Smaller font
    Copy
    Print
    Contents