Loading...
Larger font
Smaller font
Copy
Print
Contents

Daglegt Líf

 - Contents
  • Results
  • Related
  • Featured
No results found for: "".
  • Weighted Relevancy
  • Content Sequence
  • Relevancy
  • Earliest First
  • Latest First
    Larger font
    Smaller font
    Copy
    Print
    Contents

    ÁSTRÍKI OG HUGSUNARSEMI A HEIMILINU, 18. júní

    Ef vér elskum hver annan þá er Gud stöðugur i oss og kærleikur hans er fullkomnadur í oss. 1. Jóh. 4, 12DL 175.1

    Gerðu andrúmsloft heimilis þíns ilmandi af ljufri hugsunarsemi. 56Letter ISb, 1891DL 175.2

    Heimilið á að vera miðdepill hins hreinasta og göfugasta kærleika. A hverjum degi ætti með þolgæði að hlúa að friði, samræmi, kærleika og hamingju þar til þessi dýrmætu atriði búa í hjörtum þeirra sem mynda fjölskylduna. 57Signs, June 20, 1911DL 175.3

    Ástæðan fyrir því að svo margir harðbrjósta menn og konur eru í heiminum í dag er sú að sannur kærleikur hefur verið skoðaður sem veikleiki og úr honum hefur verið dregið og haldið aftur af honum. Betri þáttunum í eðli þeirra sem þennan hóp skipa hefur verið umsnúið og það gjört dvergvaxið í bernsku og er hamingja slíkra grafin að eilífu nema geislar guðlegs ljóss geti brætt kulda þeirra og eigingirni. Ef við viljum hafaviðkvæm hjörtu eins og Jesú hafði þegar hann var hér á jörðunni og helgaða samhygð, eins og englarnir hafa til syndugra, dauðlegra manna verðum við að rækta hugarfar bernskuáranna sem er blátt áfram í sjálfu sér. 583T, 539DL 175.4

    Hrósið börnum ykkar hvenær sem þið getið. Gerið líf þeirra eins hamingjusamt og hægt er... Haldið jarðvegi hjartans lausum og mjúkum með því að sýna kærleika og ástúð og búa þau þannig undir sæði sannleikans... Drottinn veitir jörðinni ekki aðeins ský og regn, heldur og fallegt, skínandi sólskin er fær sæðið til að spíra og blómin að koma í ljós. 59CPT, 114DL 175.5

    Viðurkenning í augnaráði, hvatningarorð eða hrós mun vera eins og sólarljós í hjörtum þeirra og gera oft allan daginn bjartan. 60MH. 388DL 175.6

    Hamingja eiginmanns og barna ætti að vera hverri konu og móður heilagri en hamingja allra annarra. 61IT, 465DL 175.7

    Larger font
    Smaller font
    Copy
    Print
    Contents