Loading...
Larger font
Smaller font
Copy
Print
Contents

Daglegt Líf

 - Contents
  • Results
  • Related
  • Featured
No results found for: "".
  • Weighted Relevancy
  • Content Sequence
  • Relevancy
  • Earliest First
  • Latest First
    Larger font
    Smaller font
    Copy
    Print
    Contents

    AÐ SYNGJA OG BIÐJA MEÐ NÁGRÖNNUM MÍNUM, 22. ágúst

    Og sungu þeir lofsönginn með gleði, hneigðu sig og féllu fram. 2. Kron. 29, 30DL 240.1

    Að setja sannleikann fram í kærleika og samúð við hvers manns dyr er í samræmi við þær leiðbeiningar sem Kristur gaf lærisveinum sínum þegar hann sendi þá út í fyrstu kristniboðsferð sína. Það mun nást til margra með lofsöngvum til Guðs, með auðmjúkum, hjartnæmum bænum, með einfaldri framsetningu Biblíusannleika með fjölskyldunni. Hinir guðlegu starfsmenn munu vera viðstaddir til að sannfæra hjörtu manna. “Ég er með yður alia daga” er fyrirheit hans. Fyrir fullvissu um návist slíks hjálpara getum við starfað með von og trú og hugrekki. 58R&H, Nov. 21, 1907DL 240.2

    Þörf er á þeim sem hafa sönggáfu. Söngur er ein af áhrifaríkustu leiðunum til að hafa áhrif á hjörtun meá andlegum sannleika. Oft hafa menn fyrir helga söngva snúist til iðrunar og trúar... Það ætti að kenna safnaðarmeðlimum ungum og eldri að ganga fram til að boða heiminum hinn síðasta boðskap. Ef þeir framganga í auðmýkt munu englar Guðs fara með þeim og kenna þeim hvernig á að hefja upp röddina í bæn, hvernig á að hefja upp raust sína í söng og boða boðskapinn fyrir þessa tíma. 59R&H, Tune 6, 1912DL 240.3

    Lærið að syngja einfalda söngva. Þeir munu hjálpa þér í heimsóknastarfi þínu og munu snerta hjörtun fyrir áhrif Heilags anda. Kristur heyrðist oft syngja lofsöngva... það var fögnuður í hjarta hans. Við lærum af orði Guðs að það er fögnuður hjá englum himinsins yfir einum iðrandi syndara og að Drottinn fagnar yfir söfnuði sínum með söng. 60R&H, Nov. 11. 1902DL 240.4

    Þegar þið eins og lærisveinarnir gangið frá einum stað til annars og segið söguna um kærleika frelsarans munuð þið eignast yini og munuð sjá ávexti starfs ykkar. 61R&H, Feb. 4, 1904DL 240.5

    Larger font
    Smaller font
    Copy
    Print
    Contents