Loading...
Larger font
Smaller font
Copy
Print
Contents

Daglegt Líf

 - Contents
  • Results
  • Related
  • Featured
No results found for: "".
  • Weighted Relevancy
  • Content Sequence
  • Relevancy
  • Earliest First
  • Latest First
    Larger font
    Smaller font
    Copy
    Print
    Contents

    DANÍEL VAR BINDINDISSAMUR, 7. September

    Og Daníel einsetti sér ad saurga sig ekki á matnum frá konungsborði né á víni því er konungur drakk og beiddist þess af hirðstjóra að hann þyrftí ekki að saurga sig. Dan. 1, 8DL 256.1

    Líf Daníels er innblásið dæmi um helgaða skapgerð. Þar er að finna lexíu fyrir alla og sérstaklega fyrir hina ungu. Það er gagnlegt heilsu líkama og hugar að fylgja kröfum Guðs nákvæmlega. Ef ná á æðsta staðli siðferðislega og vitsmunalega er nauðsynlegt að leita visku og styrks frá Guði og vera strangbindindissamur í öllum lífsvenjum. Í lífi Daníels höfum við dæmi um það að fastheldni við meginreglur fer með sigur af hólmi yfir freistingunni til að láta eftir matarlystinni. Þar sést að ungir menn geta með tilstilli trúarlegra meginregla borið sigurorð af fýsnum holdsins og verið hollir fyrirmælum Guðs þó að það kunni að kosta mikla fórn. 13SL, 18, 19DL 256.2

    Daníel var helgaður þjónn hins hæsta. Á löngum lífsferli sínum þjónaði hann meistara sínum af kostgæfni. Hreinleiki lundernis hans og óbilandi hollusta finna hvergi sinn líka nema í auðmýkt hjarta hans og iðrun fyrir Guði. Við endurtökum: Líf Daniels er innblásið dæmi um sanna helgun. 14SL, 39DL 256.3

    Þeir sem eru í sannleika helgaðir munu hefja siðferðisstaðalinn hvar sem þeir kunna að vera með því að viðhalda réttum líkamsvenjum og sýna öðrum eins og Daníel fordæmi um bindindissemi og afneitun...DL 256.4

    Kristnir menn ættu að stjórna venjum sínum nákvæmlega svo að þeir geti gefið alla hæfileika sína óskerta í þjónustu Krists. 15GH, Nov., 1882DL 256.5

    Sá sem metur mikils það ljós sem Guð hefur gefið honum varðandi heilsuumbót hefur hlotið þýðingarmikla hjálp í því starfi að verða helgaður fyrir sannleikann og gerður hæfur fyrir ódauðleika. 16CDF, 59. 60DL 256.6

    Larger font
    Smaller font
    Copy
    Print
    Contents