Loading...
Larger font
Smaller font
Copy
Print
Contents

Daglegt Líf

 - Contents
  • Results
  • Related
  • Featured
No results found for: "".
  • Weighted Relevancy
  • Content Sequence
  • Relevancy
  • Earliest First
  • Latest First
    Larger font
    Smaller font
    Copy
    Print
    Contents

    FJÁRSJÓÐUR Í HJARTA MÍNU, 24. Janúar

    Tak á móti kenning af munni hans, fest þér orð hans í hjarta. Job 22, 22DL 30.1

    Það er afar þýðingarmikið að þú rannsakir ritningarnar sífellt, birgir hugann upp af sannindum Guðs. Það getur verið að þú verðir útilokaður frá samfélagi kristinna og settur þar sem þú nýtur ekki þeirra forréttinda að koma saman með börnum Guðs. Þú þarfnast þess að fjársjóðir Guðs séu fólgnir í hjarta þér. 61BE, Oct. 15, 1892DL 30.2

    Á víð og dreif um alla Biblíuna eru gullkorn — spakmæli visku Guðs. Ef þú ert hygginn munt þú safna saman þessum dýrmætu sannleikskornum. Gerðu fyrirheit Guðs að þinni eign. Þessi fyrirheit munu verða þér uppspretta himneskrar huggunar, þegar reynslur og erfiðleikar koma. 62Letter 25, 1903DL 30.3

    Freistingarnar virðast oft ómótstæðilegar vegna þess að fyrir vanrækslu á Biblíulestri og baen getur sá sem fyrir freistingu verður ekki munað fyrirheit Guðs og mætt Satan með vopnum ritningarinnar. En englar Guðs eru umhverfis þá, sem eru fúsir til að taka uppfræðslu í guðlegum efnum og þegar nauðsynin krefur minna þeir þá á einmitt þau sannleiksatriði sem þörf er á. Þannig verður það að “þegar óvinurinn kemur eins og vatnsflóð, mun andi Drottins reisa hermerki á móti honum.” 63GC, 600 Hjartað, sem hefur að geyma hin dýrmætu fyrirheit orðs Guðs, er styrkt gegn freistingum Satans, gegn óhreinum hugsunum og vanheilögum gjörðum. 64YI, July 28, 1892DL 30.4

    Haltu þér fast við ritningarnar. Því meir sem þú rannsakar og útskýrir orðið þeim mun styrkari verður hugur þinn og hjarta af hinum blessuðu orðum uppörvana og fyrirheita. 65Letter 76, 1901DL 30.5

    Við skulum leggja þessi dýrmætu fyrirheit á minnið svo við getum átt orð Guðs þótt við séum svift Biblíum okkar. 66R&H, Jan. 6, 1910DL 30.6

    Larger font
    Smaller font
    Copy
    Print
    Contents