Loading...
Larger font
Smaller font
Copy
Print
Contents

Daglegt Líf

 - Contents
  • Results
  • Related
  • Featured
No results found for: "".
  • Weighted Relevancy
  • Content Sequence
  • Relevancy
  • Earliest First
  • Latest First
    Larger font
    Smaller font
    Copy
    Print
    Contents

    MEÐ SANNLEIKA, 23. nóvember

    Leifar Ísraels munu engin rangindi fremja né heldur tala lygar og í munni þeirra mun ekki finnast sviksöm tunga. Já, þeir munu vera á beit og leggjast ánþess að nokkur styggiþá. Zef. 3, 13DL 333.1

    Sannleikur og heiðarleiki eru eiginleikar Guðs og sá sem hefur þá til að bera á ómótstæðilegan kraft. 48MS 139, 1898DL 333.2

    Verið aldrei með vífilengjur. Aldrei fara með ósannindi, hvorki í orðum eða athöfnum... Verið hrein og bein og hvikið ekki frá sannleikanum. Ekki ætti að leyfa sér svo mikið sem minnstu undanbrögð. 49MS 126, 1897DL 333.3

    Frelsarinn hefur dýpstu fyrirlitningu á allri blekkingu. Sú stranga hegning sem Ananias og Saffíra hlutu sýnir þetta. 50R&H, April 13, 1905DL 333.4

    Lygavarir eru honum vióurstyggð. Hann segir að inn í borgina helgu skuli “alls ekkert óhreint..., né sá sem fremur viðurstyggð eða iðkar lygi.” Segið sannleikann án allra vífilengja. Látið það vera hluta af lífi ykkar. Við bíðum skipbrot á trú okkar ef við förum lauslega með sannleikann og hagræðum honum eftir eigingjörnum áformum okkar... Sá sem lætur ósannindi í ljós selur sál sína ódýrt. Lygi hans kann að þjóna vissum tilgangi í ógöngum. Hann virðist hafa framgang með þessu móti í viðskiptaheiminum sem hann gæti ekki öðlast með heiðarleika en að lokum kemst hann í þá aðstöðu að geta engum treyst. Þar sem hann er sjálfur lygari hefur hann enga tiltrú á orðum annarra. 51AA, 76DL 333.5

    Enginn maður getur stært sig af sannsögli sinni því hann veit ekki hvað sannsögli er fyrr en hann hefur sigrað. Enginn getur vitað hversu sterkur hann er í sannsögli og heiðarleika fyrr en hann hefur staðist eldskírn þeirrar freistingar að eignast fé á vafasaman hátt. 52Letter 110, 1897DL 333.6

    Sá sem á kærleika Guðs í hjarta sínu leyfir ekki sjálfsupphefð eða óheiðarleika að eiga rúm í hjarta sínu. Sá sem er endurfæddur fyrir Andann sýnir hugarfar Krists í daglegu lífí. Hann er hreinn og beinn í öllum viðskiptum sínum. Hann sýnir engin slóttugheit eða brögð í verkum sínum. Góðu ávextirnir sem koma fram í lífi hans bera vott um ástand hjarta hans. 53R&H, May 4, 1905DL 333.7

    Larger font
    Smaller font
    Copy
    Print
    Contents