Loading...
Larger font
Smaller font
Copy
Print
Contents

Daglegt Líf

 - Contents
  • Results
  • Related
  • Featured
No results found for: "".
  • Weighted Relevancy
  • Content Sequence
  • Relevancy
  • Earliest First
  • Latest First
    Larger font
    Smaller font
    Copy
    Print
    Contents

    BIÐJIÐ Á MORGNANA, 11. Janúar

    Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína, á morgnana legg ég mál mitt fyrir þig og horfi og horfi. Sálm. 5, 4DL 17.1

    Hinn fyrsti andardráttur sálarinnar á morgnana ætti að vera bæn um nærveru Jesú. “Án mín,” segir hanrt, “getið þér alls ekkert gjört.” Það er Jesús, sem við þörfnumst. Ljós hans, líf hans og andi hans verða að vera sífellt okkar eign. Við þörfnumst hans á hverri stund. Og við ættum að biðja á morgnana, að eins og sólin lýsir upp landslagið og fyllir heiminn ljósi, skíni sól réttlætisins inn í afkima hugar og hjarta og geri okkur öll ljós í Drottni. Við getum ekki verið án nærveru hans eitt augnablik. Óvinurinn veit hvenær við tökumst á hendur að vera án Drottins og þá er hann þar að fylla huga okkar sínum illu uppástungum til þess að við föllum frá staðfestu okkar. En það er þrá Drottins að við séum í honum á hverju augnabliki og verðum þannig alger í honum...DL 17.2

    Guð ætlast til að hvert okkar sé fullkomið í honum svo að við getum sýnt heiminum fullkomnun lyndiseinkunnar hans. Hann vill að við öðlumst frelsi frá synd, að við völdum ekki himninum vonbrigðum, að við hryggjum ekki hinn guðlega endurlausnara. Hann langar ekki til að við játum kristna trú, en færum okkur svo ekki í nyt þá náð sem getur gert okkur fullkomin, svo að okkur verði einskis vant. 26BE, Jan. 15, 1892DL 17.3

    Bæn og trú munu framkvæma það verk, sem ekkert vald á jörðu getur framkvæmt. Við erum sjaldan í öllu tilliti sett í sömu kringumstæðurnar tvisvar. Það eru sífellt ný sjónarsvið að sjá og nýjar prófraunir sem við verðum að þreyta, þar sem liðin reynsla er ekki nægileg leiðsögn. Við verðum að hafa það stöðuga ljós sem kemur frá Guði. Kristur er ávallt að senda þeim boðskap sem hlusta eftir raustu hans. 27MH, 509DL 17.4

    Það er hluti af áformi Guð að veita okkur, sem svar við trúarbæn okkar, það sem hann mundi ekki láta í té, ef við bæðum ekki um það. 28GC, 525DL 17.5

    Larger font
    Smaller font
    Copy
    Print
    Contents