Go to full page →

Að fylgja tillögum Satans RR 152

En hve óvininum hefur tekist að setja tímanlega hluti ofar andlegum hlutum. Margar fjölskyldur sem hafa aðeins lítið til að gefa í málefni Guðs, eyða samt töluverðum peníngum til kaupa á dýrum húsgögnum eða tískufatnaði. En hve miklu er eytt til matarkaupa, og oft í það sem aðeins er skemmandi eftirláttsemi! Og hve miklu er ekki eytt í gjafir sem enginn hefur gagn af! RR 152.2

Peningarnir sem eytt er í þarflausa hluti myndu geta fyllt mörg borð af lesefni um sannleika okkar tíma, sem myndi reynast ilmur af lífi til lífs. - R&H 23. des. 1890. RR 152.3