Go to full page →

Horfst í augu við nýja árið RR 60

Hvernig er það með ráðsmennsku ykkar? Hafið þið á liðna árinu rænt Guð í tíundum og gjöfum? Lítið á vel fylltar hlöður ykkar, á kjallara ykkar þar sem þið hafið komið fyrir þeim gæðum sem Drottinn hefur gefið ykkur, og spyrjið ykkur sjálf hvort þið hafið skilað til gefandans því sem honum tilheyrir. Ef þið hafið rænt Drottinn, skilið þá aftur. Svo framarlega sem mögulegt er, gerið upp hið liðna, og biðjið síðan frelsarann að fyrirgefa ykkur. Viljið þið ekki skila aftur til Drottins því sem honum tilheyrir áður en þetta ár, með sína útfylltu skýrslu, er horfið inn í eilífðina? - R&H 23. des. 1902. RR 60.2