Go to full page →

Staðið gegn freistingum RR 82

Satan býður sérhverri sál konungsríki þessa heims í skiptum fyrir að framfylgja vilja hans. Þetta var það sem hann hvatti Krist svo mjög til að gera í eyðimörk freistinganna. Og þannig segir hann við marga fylgjendur Krists: Ef þú fylgir viðskiptaaðferðum mínum, mun ég launa þér með auðæfum. Sérhver kristinn einstaklingur er einhvern tíma prófaður þannig, að í ljós koma veikar hliðar lyndiseinkunnar hans. Ef staðið er gegn freistingum vinnast dýrmætir sigrar. Hann verður að velja hvort hann vill þjóna Kristi eða verða fylgjandi svikarans og tilbiðjandi hans. - Signs 24. febr. 1909. RR 82.6