Go to full page →

Skráningin í höfuðbók himinsins RR 83

Venjur heimsins eru enginn staðall fyrir hinn kristna. Hann á ekki að líkja eftir viðskiptabrögðum heimsins, svikum og féflettingum. Sérhver óréttlát athöfn gagnvart meðbróður er brot gegn gullnu reglunni. Sérhver röng athöfn gagnvart börnum Guðs beinist gegn Kristi sjálfum í persónu hans endurleysta fólks. Sérhver tilraun til að hagnast á vanþekkingu, veikleika eða óhöppum annarra er skráð sem svik í höfuðbækur himinsins. Sá sem í sannleika óttast Guð, mundi frekar vilja strita dag og nótt og snæða brauð fátæktarinnar en að láta undan ástríðu eftir hagnaði sem bitnar á ekkjum og föðurlausum eða rænir hinn ókunnuga rétti sínum. RR 83.1

Hagnaður sem fenginn er á þennan máta er hræðilegt tap. - PK 651, 652. RR 83.2