Go to full page →

Nísk og eigingjörn viðskipti RR 83

Gerðu ekki verk og málefni Guðs að afsökun fyrir því að skipta á nískan og eigingjarnan hátt við neinn, jafnvel þótt viðskiptin snerti starf Guðs. Guð mun ekki veita viðtöku neinum hagnaði sem færður er í fjárhirslu hans fyrir eigingjarna viðskiptahætti. Sérhver athöfn í sambandi við starf hans á að standast guðlegt eftirlit. Öll kæn viðskipti, sérhver tilraun til að hagnast á manni sem er í kröppum kringumstæðum, sérhvert áform til að kaupa land eðá eign hans undir verðgildi þess, mun ekki vera Guði þóknanlegt, jafnvel þó að fjármunirnir sem í hagnað koma séu lagðir í málefni hans. - R&H 11. des. 1894. RR 83.3