Við nálgumst endi tímans. Við viljum ekki aðeins kenna sannleika okkar tíma frá ræðustólnum, heldur lifa hann utan ræðustólsins. Rannsakið nákvæmlega grundvöll vonar ykkar um frelsun. Meðan þú ert í þeirri stöðu að vera boðberi sannleikans, vaktmaður á veggjum Síonar, getur þú ekki blandað inn í áhugamál þín námuviðskiptum eða fasteignasölu og á sama tíma náð árangri í þvíað helga verki sem lagt hefur verið í þínar hendur. Þar sem sálir manna eru í veði, þar sem um hagsmuni eilífðarinnar er að ræða er ekki hægt að skipta huganum án áhættu. RR 128.1
Þessu er sérstaklega þannig varið í þínu tilfelli. Þegar þú hefur verið upptekinn í þessum viðskiptum, hefur þú ekki ræktað með þér einlæga guðrækni. Þú hefur haft ákafa löngun til að safna auði. Þú hefur talað við marga um þann fjárhagslega hagnað sem felist í að fjárfesta í landareignum. Aftur og aftur hefur þú verið upptekinn við að ímynda þér hagnaðinn af þessum viðskiptum; og það á meðan þú varst vígður prestur Krists undir því heiti að gefa sál, líkama og anda í þágu frelsunar sálna. Samtímis fékkstu fé úr fjárhirslunni til að halda þér og fjölskyldu þinni uppi . . . RR 128.2