Go to full page →

SPÁMENN GUÐS OPINBERA SANNLEIKANN, 5. febrúar DL 42

Nei, herrann Drottinn gjörir ekkert án þess að hann hafi opinberað þjónum sínum spámönnunum ráðsályktun sína. Amos 3, 7 DL 42.1

Áður en syndin kom í heiminn, naut Adam frjálsrar umgengni við skapara sinn. En síðan maðurinn fjarlægðist Guð með yfirtroðslum, hefur mannkynið verið svipt þessum forréttindum. Með endurlausnarverkinu var samt fundið ráð til þess að jarðarbúar geti verið í sambandi við Drottin himnanna. Guð hefur haft samneyti við mennina fyrir Heilagan anda og heilagt ljós hefur veist heiminum með opinberun til hinna útvöldu bjóna Drottins. “Menn frá Guði töluðu, knúðir af Heilögum anda.” 2. Pét. 1, 21. DL 42.2

Hinn óendanlegi Guð hefur með Anda sínum úthellt ljósi sínu í hjörtu og hugi þjóna sinna. Hann hefur veitt drauma og sýnir, tákn og myndir og þeir sem sannleikurinn hefur þannig verið opinberaður hafa klætt hugsanirnar í búning mannlegrar tungu.” 11GC, v, vi DL 42.3

“Nei, herrann Drottinn gjörir ekkert án þess að hann hafi opinberað þjónum sínum spámönnunum ráðsályktun sína.” Amos 3, 7 DL 42.4

Í forsjón sinni hefur Guð séð það hæfa að kenna fólki sínu og aðvara á ýmsan hátt. Hann hefur gert þeim vilja sinn kunnan með beinum skipunum, með hinum helgu ritum og með anda spádómsins. 124T, 12, 13 DL 42.5

Fyrr á öldum talaði Guð til manna fyrir munn spámanna og postula. Á þessum dögum talar hann til þeirra fyrir áhrif Vitnisburða Anda síns. Ekki hefur Guð á neinu öðru skeiði frætt börn sín af meiri ákafa en nú varðandi vilja sinn og þá stefnu sem hann vill að þau fylgi. 134T, 147, 148 DL 42.6

Söfnuði Guðs á jörðunni í dag — gæslumanni víngarðs hans — eru einkar þýðingarmiklar þær áminningar og leiðbeiningar, sem spámennirnir hafa flutt og hafa skýrt hinn eilífa tilgang Guðs varðandi mannkynið. Kærleikur hans til glataðs mannkyns og áform hans um endurlausn þess koma greinilega í ljós í kenningum spámannanna. 14PK, 22 DL 42.7