Loading...
Larger font
Smaller font
Copy
Print
Contents

Daglegt Líf

 - Contents
  • Results
  • Related
  • Featured
No results found for: "".
  • Weighted Relevancy
  • Content Sequence
  • Relevancy
  • Earliest First
  • Latest First
    Larger font
    Smaller font
    Copy
    Print
    Contents

    KRISTUR HIÐ INNRA, UPPSPRETTA HAMINGJU, 2. júní

    Hrósið yður af hans helga nafni. Hjarta þeirra, er leita Drottins, gleðjist.1. kron. 16, 10DL 159.1

    Margir... krefjast þess sem þeir hafa ekki. Þeir eyða peningum sinum fyrir það sem ekki er brauð og erfiði sinu fyrir það, sem ekki er til saðnings. Hina hungruðu og þyrstu sál mun halda áfram að hungra og þyrsta meðan hún tekur þátt í þessum ófullnægjandi skemmtunum. O, að hver slíkur vildi hlusta á raust Jesú: “Hver sá, sem þyrstur er, hann komi til mín og drekki.” Þá sem drekka af lífsvatninu mun ekki þyrsta framar... Kristur, uppspretta lífsins er lind friðar og hamingju. ..DL 159.2

    Æskan á að mikla nafn Drottins vegna hans miklu gæsku, ástríku náðar og blíðu samúðar. Hún getur miklað nafn hans með því að kunngera náð hans í vel skipulögðu lífi og guðlegu samtali. Og er hún gerir þetta verður hún ljúflynd. Bráðlyndið hverfur. 4YI, Nov. 6. 1902DL 159.3

    Það hjarta er hamingjusamast sem hefur Krist sem dvalargest. Það heimili hlýtur mesta blessun, þar sem guðræknin er ríkjandi meginregla... A vinnustofunni, þar sem friður og himnesk návist Krists ríkir munu starfsmennirnir vera trúverðugastir, dyggastir og duglegastir. Ótti og kærleikur Guðs sjást. 5Letter 48, 1897DL 159.4

    Það er hvorki vellíðan eða hamingja í heiminum án Jesú. Viðurkennum hann sem vin okkar og frelsara... í honum er óviðjafnlegur unaður. O, að við mættum lifa svo á þessum stutta reynslutíma okkar, að við fengjum að ríkja með honum um endalausar tíðir eilífðarinnar! 6YI, Feb. 12, 1903DL 159.5

    Ef Kristur dvelur í hjartanu fyrir trú ... munt þú vera hamingjusamur, fullur lofgjörðar og fagnaðar. 7YI, Oct. 13, 1892DL 159.6

    Larger font
    Smaller font
    Copy
    Print
    Contents